21mars

NÝ SÍÐA

Hoffellsmenn eru komnir með nýja síðu 123.is/hoffellsu80
21. mars 2009 klukkan 22:48
Áhöfn
Almennt
Engin athugasemd
05mars

Nú er kallarnir farnir að kveða vísur um borð.



Á Gulldeplu menn margir fóru

Og meðallaun þóttu nokkuð góð

Í morgun Bergur og Gunnsi fóru

Heim til að væta sín viltu tól.



Spónarplötur alla daga

Þess á milli hakk að naga

Túrinn og kosturinn næstum búinn

Og kokkurinn orðinn heldur lúinn

Höfum þá til þrautavara

Gulldeplu í neyð að naga.



Það verður bloggað meira í seinna í túrnum.



Kveðja kallarnir

05. mars 2009 klukkan 12:50
Áhöfn
Engin athugasemd
17febrúar

Þá eru kallarnir á leið í land í útlöndum nánar til tekið
Vestmannaeyja og erum við að fara að landa gulldeplu
og erum við komnir með rúm 4 þúsund tonn að landi
síðan við byrjuðum 18. janúar og hefur þetta bara gengið nokkuð vel hjá okkur. Jón Kára lauk brýnu verkefni
sínum í rvk og á fásk þannig að hann gat komið aftur
til starfa um borð en ekki hefur náðst fullfermi
síðan það er spurning um tenginguna þarna á milli.
En þetta er ágætt í billi en aðalbloggarinn er að fara
í frí þannig að það verður mikið og langt blogg þegar hann snýr aftur endurnærður. Heilsum heim kallarnir
17. febrúar 2009 klukkan 14:40
Áhöfn
Engin athugasemd
02febrúar

Gleðilegt nýtt ár

Jæja þá er komið nýtt ár og nýjir tímar því við erum farnir að veiða norræna gulldeplu sem er minnsti fiskur sem veiddur er við ísland samkvæmt okkar mælingu er 600 stykki í kílóinu 4 til 6 sentimetrar á lengd. Og hafa veiðarnar gengið vel hjá okkur enda mikið afla skip hann er svo mikill afla maður capitanó að þegar bundið var við bryggju í eyjum þá fylltist dekkið af síld. Við höfum landað þrisvar í Eyjum og erum komnir með tæp 2000 tonn eða
1.200.000.000 stykki. Dropi og Sopi fóru á lífið og eru þeir óslasaðir. Nú er kokkurinn farinn í land þannig að fresta varð froðu diskóinu sem átti að vera í kvöld um óákveðinn tíma og er Haukur farinn að kokka. Jón stormur er í fríi og var bras á okkur fyrsta túrinn en reddaðist þegar hann fór í frí. Við hér um borð viljum biðjast afsökunar á mjög stopulu bloggi, en þar sem er mjög léleg internet tenging hér um borð, en við vonumst til að þetta lagist fyrir 2013.

Handlæg húsráð Ómars

-Setja skal einn bolla af uppþvottalögi í uppþvottavélin ef halda á
froðudiskó í meðal stóru skipi þannig komi upp um öll niðurföll.

Hef að þessu góða reynslu og mæltist þetta vel fyrir


Kveðja
Ólafur Ragnar (ómar kokkur)



Kveðja kallarnir á Hoffelinu

02. febrúar 2009 klukkan 10:09
Áhöfn
1 athugasemd
03desember

Jæja þá er kallarnir á siglingu um landið að leita að ósýktri síld en eins og er gengur það ekkert allt of vel að finna hana. En síðan bloggað var síðast höfum við farið í 2 túra í Breiðafjörð og gengu þeir vel en svo kom bobb í bátinn þegar tunnur vantaði og voru kallarnir settir í 6 daga stopp sem að nýttist mönnum mis vel.


Kokkurinn hefur lofað fjölbreyttum matsseðli þennan mánuðinn 8 réttum jafnvel fleiri ef liggur vel á honum ? ef við náum í kost í Grundafjörð.

Þá er það árleg árshátíð LVF en mætting virðist ekki ætla að verða 100 % hjá áhafnar meðlimum vegna mikila verkefna til dæmis segist minni kleina ætla að skera út laufabrauð og komist þar af leiðandi ekki en spurning er hvort að hann sé ekki bara með sviðshræðslu þar sem hann átti að leika spunaleikrit um hornsófaletidýr.

Skemmtinefdin er skipuð skemmtilegustu og hressustu mönnunum um borð:

Hugmyndafræðingur: Jón Kræða Kárason

Formaður: Haraldur Dropastrumpur Pétursson

Varamður: Smári Sopi Einarsson



Hef pínulítin yaris til sölu en hann ber mjög mikið Haukur


Kallarnir segja þetta gott í bili og halda hinni miklu leit áfram
03. desember 2008 klukkan 16:43
Áhöfn
2 athugasemdir
17nóvember

Jæja þá er einn túr liðinn síðan bloggað var síðast og fengum við
skammtinn á einum degi í Breiðarfirði okkur til mikilar ánægju og
Gísla líka vegna hás olíuverðs.Kristmundur hinn mikli veiðimaður
Hoffellsins segjir í óspurðum fréttum að enginn rjúpa sé í
Fáskskrúðsfirði en Lukka var á öðru máli.Svo viljum bera fram
þakklæti til Varðstjórans vefsíðustjóra fyrir vel unnin störf. Kallarnir kveðja á leið á miðinn
17. nóvember 2008 klukkan 12:45
Áhöfn
1 athugasemd
07nóvember

Jæja þá eru kallarnir á Hoffellinu byrjaðir að sækja sjóinn á ný og hefur það gengið vel síðan bloggað var síðast meðal annars var met í aflaverðmæti Hoffellsins slegið í ágúst á síld/makríl veiðum.  En nú eru kallarnir farnir að veiða síldina í Breiðafirðinum inn um eyjar og sker og hefur það gengið nokkuð auðveldlega fyrir sig enda vanir menn á ferð.

Fyrir utan smá kost vandamál en hann nægði ekki nema til 2 daga og þurftum við að fara inn á Grundarfjörð til að taka kost sem dugði í 24 tíma og fórum svo inn aftur til að ná í meiri kost. Fyrri ferðinn á Grundarfjörð var á föstudagskvöldi og var það um talað um borð að elli væri farinn að hrjá Captininn því hann fór út aftur og lét reka fyrir utan Grundarfjörð en sólahring seinna var farið aftur og þá var nú farið á ball í samkomuhúsinu og gekk það vel fyrir utan áverka sem að Dropi og Sopi fengu en um talað var samt hvað áhöfn Hoffellsin væri nú Loðnuvinslunni til sóma þegar væri komið í aðrar hafnir.

Nú í þessum skrifuðu orðum var það að koma í ljós að Hermann Ragnarsson er heitur aðdáandi að Blood group.

Yarisinn er kominn á Yaris og fékk Björgólfur scania eitt hrúgaldið í safni sitt til viðbótar.

Eftir 5 ára bið getur Sopi nú sett í þvottavél með bros á vör að nýju vegna þess að ný þvottavél er kominn um borð en því miður þá eru fullmargir takkar á þessari nýju því hann sauð allann þvottinn sinn og er hann farinn að ganga í magabolum og stuttbuxum og
g-strengjum en sokkana getur hann ekki notað eftir þennann þvott en Jón Proppe Kárason hefur nú kennt Sopa á þvottavélina.

Minni kleina kom vel undan sumri eins og úrkynja panda björn eftir of marga hammara og kók í gleri en hann flutti til í land  til akureyrar og þar af leiðandi enginn til að passa upp á ofátið í honnum.

Gunnar er búinn að vera í stýfri tölvuþjálfun þetta sumarið þannig hann mun reyna að blogga stýft þessa vertíðina.

Nú kveðja Kallarnir.

07. nóvember 2008 klukkan 22:49
Áhöfn
1 athugasemd
16maí

Þá er Páll farinn í frí enda kominn tími til að kenna konunni að krúsa um landið á mótorfáknum. Slæmar fréttir voru að berast um borð að
Guðmundur Þorgrímsson eini Framsóknarmaðurinn í Fjarðabyggð hefur ákveðið að nota Borgarstjóra stíllinn og ráða Gunnar sem mannauðsstjóra Fjarðarbyggðar án auglýsingar en vegna mikilar reynslu og bjartsýns í því starfi um borð og
einnig hefur hann látið af öllum hrekkjum ( að minnsta kosti að kannast við þá ) hann reiknar með vegna reynslu sinnar að sjattla fólk þá er þetta ekki
nema 50% starf og svo munn hann aka hjá Guðmundi í 120% starfi. Þetta er liður í einkavina væðingu Guðmundar. Sá yngsti í rottugenginu þóttist vera með tæknivæddasta símann en vegna fyrri reynslu hans með bíla þá lítur út fyrir að símarnir ætli að fara eins og endast aðeins í viku. Þau undur og stórmerki gerðust í þessum túr að menn eru hræddir um að eldgos og loftsteinar fari að hrapa það sást til vélstjóra með SMURSPRAUTU en sumir héldu fyrst að Björn væri genginn aftur hér um borð. Dropi og Sopi eru í hálfgerðu einelti búið var að slá út rafmagninu í klefa þeirra og líma svartan ruslapoka fyrir hurðina og sváfu þeir af sér bæði hádegis og kvöldmat endu héldu þeir að þeir hefðu komið inn í gærkvöldi og væru bara á hefðbundnu fyllerí í Rósagarðinum. Skildi mannauðsstjórinn taka á þessu máli á næsta hópeflisfundi í stakkageymslunni (eða er spilling í því starfi).


Bloggað verður meira í lok túrsins


Kallarnir kveðja og minna á Sjómannadaginn 1 Júní
16. maí 2008 klukkan 14:50
Áhöfn
5 athugasemdir
11maí

Þá erum við lagðir af stað í land með fullfermi af kolmunna það var ágætis veiði og vorum við að fiska við Færeyjar. Menn eru búnir að liggja í símanum allann túrinn því það er gemsa samband frá Færeyjum þó mismikið því sumir geta stungið gemsanum undir hjálminn og talað meðan unnið er á dekkinu en aðrir eru með svo feitar kinnar eða loðnir í andlitinu að gemsin kemst ekki undir hjálmin.  Gunnar var að koma úr fríi og fór hann til Reykjavíkur til þess að kaupa sér Benz en endaði bara á hálfum Benz eða öðru nafni "Musso" .  Hann er mjög  stressaður að koma í  land því hann veit ekki hvort hann sé gangfær ennþá eða ekki.  Húsvíkingurinn og Hríseyingurinn voru samferða austur fyrir síðasta túr og var sambandið þeirra á milli svo gott að þeir töluðu saman í síma á leiðinni, Haraldur okkar litli sér orðið elskuna sína í hillingum og dásamar Austurríki stöðugt .  Árni uppgvötaði  eftir 8 ára sjómensku með skippstjóranum að Bergur væri púllari og tók Árni þetta  svo nærri sér að hann ákvað að fara í frí og gleyma allri þessari vitleysu og þeysa bara um á mótorfáknum sínum.  Tveir hásetar eru búnir að leysa kokkin af í síðustu túrum og hafa þeir báðir staðið sig með prýði, og tala þeir báðir um hvað þetta sé rólegt starf og sé ekki nema 3 og hálfs tíma starf á sólahring, til að fylla þá 4 tíma vinnu sem kokksstarfið er eru þeir búnir að dunda sig við að pússa eldhúsið og matvælageymslur.  Yfirvélstjóri varð fyrir barðinu á HERMANNA VEIKINNI fyrstu þrjá sólahringana og var sárkvalinn.  Í byrjun túrs var framinn alvalegur glæpur um borð þegar stóra kókosbollumálið hófst!!!!!  Endaði málið í hæstu hæðum, með öðrum orðum í brúnni, hið sanna er það Smári átti stærstan þátt í málinu en startað af  Hermanni. Dómsátt er komið í málið þar sem allar enduðu í VÖMB HaraldarHaraldur startaði miklu heilsuræktar átaki um borð, eftir að hafa frétt að stýrimannssonur á Ljósafellinu hafi tjáð foreldrum sínum að lítill rauðhærður maður með "ROSALEGA STÓRA BUMBU" hafi verið með honum að horfa á fótboltaleikHlæjandi  Sá yngsti í rottugenginu sást undir morgun þegar allir voru farnir að sofa nema
vélstjóri og 1 stýrimaður hamast á hjólinu og taldi hann sig hafa verið svo duglegan á hjólinu að hann væri búin að vinna sér inn fyrir 3 samlokum eftir
átökin.  Sú hugmynd kom hjá vélstjórunum að tengja rafala við hjólið og tengja það við rafkerfið, því  Haraldur og Smári séu svo öflugir að það mætti stór spara olíukostnað í túrnum með þessum aðgerðum.  Gladdi það marga að hinn sparneytni og vistvæni Ameríski eðalvagn Einars skyldi kom  austur með grænan miða á númerinu.  Unnsteinn okkar er loksins búin með 6 ára einangrunarvist í Hrísey sem hann var settur í af eiginkonunni til að halda honum frá spilakössunum, og fær hann 4 ára reynslulausn í siðmenningunni á Akureyri.  Kallarnir kveðja í bili.



Smáauglýsingar...

Tek að mér símaþjónustu
"Einar"


Á einhver kókosbollu handa mér
"Haraldur"


Segi alltaf satt 
"Hermann"


Á einhver hinn helminginn af Benzanum
"Gunnar"


Strákar verið alveg rólegir
"Hermann"


Bergur ætlarðu virkilega að skrölta á 200 tonnum á sólahring
"Gunnar"


"Vantar sopa" 
Halli Dropi


"Vantar dropa" 
Smári Sopi


11. maí 2008 klukkan 22:23
Áhöfn
1 athugasemd
01maí

Við erum við þá í öðrum túr síðan síðast var bloggað en ekki gafst tími til þess að blogga í síðasta túr vegna mikillar veiðar en sá túr tók rétt rúma fjóra sólahringa og vonuðust menn eftir því að þessi túr yrði eins en svo varð ekki og er nú kominn rúm vika og erum við en á sjó. Það var einn áhafnarmeðlimur sem fór í frí og sagðist hann vonast til að ekki yrði svona góð veiði þennan túr það rættist hjá honnum. Svo fór aðalbloggarinn (King Kong) í frí þannig að lítið verður bloggað.


Kallarnir kveðja að sinni.

01. maí 2008 klukkan 13:09
Áhöfn
3 athugasemdir

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...